Faxaborg Borgarnesi
við Vindás


25.01.2012 14:10

SÝNIKENNSLU FRESTAÐ

Sýnikennslu Guðmars Þórs Péturssonar sem vera átti í kvöld miðvikudag 25/01 2012 hefur verið frestað vegna veðurútlits.

Sýnikennslan verður mánudaginn 30. janúar 2012 kl. 20:00

19.01.2012 16:18

SÝNIKENNSLA

Guðmar Þór Pétursson tamningamaður með meiru verður með sýnikennslu í Faxaborg miðvikudaginn 25. janúar 2012 kl. 20:00.  Guðmar Þór er óþarft að kynna fyrir hestamönnum og ættu þeir ekki að láta þetta tækifæri framhjá sér fara.
Aðgangseyrir 1.000 fyrir 16 ára og eldri.  Ókeypis fyrir 15 ára og yngri.

12.01.2012 09:29

VESTURLANDSSÝNING

Laugardaginn 24. mars 2012 verður Vesturlandssýning í Faxaborg en sýningin í fyrra tókst mjög vel þannig að ástæða þykir til að endurtaka leikinn.
Þeir sem hafa áhuga á því að sýna hross á sýningunni eða eru með ábendingar um atriði á sýningunni eru beðnir að láta vita til Inga s. 860 2181 eða
lit@simnet.is eða Ámunda s. 892 5678 eða amundi@isl.is

11.01.2012 15:04

KNAPAMERKIÐ

Laugardaginn 14. janúar 2012 verður Faxaborg upptekin frá kl. 09:00 til 12:00 vegna kennslu í Knapamerkinu

05.01.2012 14:49

KNATTSPYRNUÆFINGAR í Faxaborg

Knattspyrnuæfingar á vegum Skallagríms verða á þessum tímum:
Mánudagur        kl. 16:15-17:15
Miðvikudagur    kl. 16:15-18:30
Fimmtudagur    kl.  17:00 til 18:00

04.01.2012 08:06

Árs- og mánaðarkort

Að gefnu tilefni skal það ítrekað að aðeins handhafar árs- og mánaðarkorta mega nota Faxaborg til útreiða.  Korthafar mega ekki hleypa öðrum inn í höllina.
Notendur hallarinnar skulu þrífa upp skít eftir sína hesta á reiðvelli og í hesthúsi að lokinni notkun.
Brjóti korthafar gegn þessum og öðrum gildandi reglum verða þeir sviptir afnotarétti af Faxaborg.

04.01.2012 08:00

KNAPAMERKIÐ

KNAPAMERKIÐ verður kennt í Faxaborg í vetur og eru þessir tímar uppteknir vegna þess:
Þriðjudagur 10. og 24. janúar frá kl. 17:00 til 20:00

Þriðjudagur 7. og 21. febrúar frá kl. 17:00 til 21:30.

Þriðjudagar í mars, apríl og maí frá kl. 17:00 til 19:30.

23.12.2011 08:54

REIÐNÁMSKEIÐ

Helgina 7. og 8. janúar 2012 verður Þórdís Erla Gunnarsdóttir reiðkennari og tamningamaður frá Auðsholtshjáleigu með reiðnámskeið (reiðtíma) í Faxaborg.
 
Það verður tvisvar sinnum einkatími í 30-40 mínútur í hvort skipti og svo verða einu sinni tveir saman í um 40 mínútur. 
Takmarkað pláss og því um að gera að panta sem fyrst.
Hægt verður að geyma hesta í Faxaborg.
Helgin kostar 17.000.

Nánari upplýsingar hjá Eygló Huldu Óskarsdóttur -
eyglo.krossi@gmail.com eða í síma 862 9924.

05.12.2011 08:11

FOLALDASÝNING ÚRSLIT

Folaldasýning var í gær sunnudag í Faxaborg.  Þar voru sýnd 25 folold, 17 hryssur og 8 hestar.  Það var vandsamt verk fyrir Dalamanninn Valberg Sigfússon kynbótadómara að dæma enda voru þarna mörg glæsileg og vel ættuð folöld.  Folöldin sýna það vel að ræktendur/eigendur þeirra eru metnaðarfullir í ræktunarstarfinu.
Ekki var raðað í sæti fyrir utan 1. sæti.
Úrslit urðu þessi.
Hryssur:
1. sæti Hrafnhetta frá Innri-Skeljabrekku IS2011235610    brúnskjótt/höttótt
    Móðir: Nánd frá Miðsitju.    Faðir: Álfur frá Selfossi.
    Ræktandi og eigandi: Þorvaldur Jónsson

2.-4. sæti    
Brynja frá Oddsstöðum 1    IS2011235715    grá/rauð stjörnótt
    Móðir: Brák frá Oddsstöðum 1    Faðir: Krákur frá Blesastöðum 1A
    Ræktandi og eigandi: Sigurður Oddur Ragnarsson

Fluga frá Einhamri    IS2011235260    brún
    Móðir: Freyja frá Litla-Kambi    Faðir: Krákur frá Blesastöðum 1A
    Ræktendur og eigendur: Sif Ólafsdóttir og Hjörleifur Jónsson

Gloría frá Kópareykjum    rauð
    Móðir: Gleði frá Kópareykjum    Faðir: Glymur frá Skeljabrekku
    Ræktendur og eigendur: Jón Eyjólfsson og Rebecca Dorn


Hestar:
1. sæti    Sigurberg frá Eiðisvatni       IS2011135289    jarpur
    Móðir: Daladís frá Eiðisvatni    Faðir: Heimur frá Votmúla 1
    Ræktendur og eigendur: Ása Hólmarsdóttir og Hólmar Pálsson

2.-3. sæti
Frakkur frá Ferjukoti    IS 2011136553    rauðblesóttur
    Móðir: Gná frá Skáney    Faðir: Asi frá Lundum
    Ræktandi og eigandi: Heiða Dís Fjeldsted

Fálki frá Innri-Skeljabrekku    IS2011135612    brúnstjörnóttur
    Móðir: Brá frá Innri-Skeljabrekku    Faðir: Dynjandi frá Innri-Skeljabrekku
    Ræktandi og eigandi: Þorvaldur Jónsson

Áhorfendur völdu svo fallegast folaldið að þeirra mati.  Sigurvegari:
Fluga frá Einhamri    IS2011235260    brún
Móðir: Freyja frá Litla-Kambi    Faðir: Krákur frá Blesastöðum 1A
Ræktendur og eigendur: Sif Ólafsdóttir og Hjörleifur Jónsson

Eigendum og ræktendum allra folalda á sýningunni er þakkað kærlega fyrir þátttökuna.

02.12.2011 13:59

FOLALDASÝNING

Folaldasýning verður kl. 14:00 í Faxaborg sunnudaginn 4. des. 2012. 
Sýnd verða a.m.k. um 20 folöld og eru þau öll vel ættuð.  Áhugasamir geta enn skráð eða til kl. 12:00 á morgun laugardag 3/12 hjá Inga gsm 860 2181
Frítt inn fyrir 16 ára og yngri.
17 ára og eldri kr. 1.000 en hjón 1.500.
Alla vega eitt folaldið er til sölu og þá verða að öllum líkindum nokkur fullorðin hross til sölu.

15.11.2011 17:52

FOLALDA- og SÖLUSÝNING

Folalda- og sölusýning í Faxaborg, Borgarnesi

Folaldasýning verður í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, sunnudaginn 4. des. nk. kl. 14:00.  Skráning fari fram í síðasta lagi 01/12 nk. hjá Inga á netfangið lit@simnet.is eða í síma 860 2181.  Skráningargjald á folald er 1.000

Eftir folaldasýninguna verður sölusýning hrossa ef næg þátttaka fæst.  Skráning fer fram hjá Inga í síðasta lagi 01/12 nk.  Skráningargjald á hross er 2.000.

Aðgangseyrir 1.000 kr. fyrir 17 ára og eldri.
Aðstaða (19 stíur) í hesthúsinu við Faxaborg til að geyma hross þurfi eigendur þess.

Áhugasamir folaldaeigendur og eigendur söluhrossa endilega að hafa samband sem fyrst.

14.11.2011 16:54

Faxaborg LOKUÐ

Faxaborg verður lokuð mánudaginn 14/11 og þriðjudaginn 15/11 2011 vegna framkvæmda.
Um helgina unnu nokkrir (hefðu mátt vera fleiri) félagsmenn í Skugga og Faxa í viðhaldi og endurbótum í Faxaborg.  Þar má nefna að grafið var frá sökkli á hesthúsi, hann einangraður og klæddur með stáli.  Þá var sett drenlögn við hesthúsið.  Þessu er ekki alveg lokið.  Veggir í hesthúsi að innan voru þrifnir.  Þá voru veggirnir í kringum reiðvöllinn hreinsaðir og málaðar tvær umferðir.  Byrjað var að mála veggi á gangi við snyrtingar og afgreiðslu.  Þeir sem hafa tíma og geta aðstoðað við að klára þessi verk eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Inga gsm 860 2181 eða Ámunda gsm 892 5678. 

 

03.11.2011 21:27

KNATTSPYRNA í FAXABORG

Knattspyrnudeild Skallagríms verður með æfingar fram að áramótum í Faxaborg á miðvikudögum kl. 17:00 til 20:00 og á fimmtudögum frá kl. 16:15 til 19:15.
Old boys verða með knattspyrnuæfingu frá kl. 20:00 til 21:00 á miðvikudögum.  Hestamenn geta því ekki notað reiðhöllina á þessum tímum.

31.10.2011 09:16

VINNUDAGUR Í FAXABORG

Vinnudagur í Faxaborg verður laugardaginn 12. nóvember 2011 og verður byrjað kl. 09:00.  Það þarf að þrífa, mála, smíða og fleira.
Óskað er eftir félagsmönnum úr Faxa og Skugga.  Margar hendur vinna létt verk.
Nánari upplýsingar hjá Inga gsm 860 2181 og Ámunda gsm 892 5678

31.10.2011 09:11

MÓTARÖÐ FAXA OG SKUGGA

Mótaröð Faxa og Skugga í Faxaborg 2012 verður þessa daga:
4. febr.  Fjórgangur
25. febr.  Tölt
18. mars    Fimmgangur og T2
Þetta er opin íþróttakeppni og bæði einstaklings- og liðakeppni.
Þá er einnig fyrirhugað að halda gæðingakeppni á beinni braut úti þ.e. á ís.
Nánari upplýsingar þ. á m. um fyrirkomulag og reglur á facebook síðu mótaraðarinnar og á hmfskuggi.is
  • 1



Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 47
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 59452
Samtals gestir: 21972
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:38:23